Category Archives: Menntun

Þáttur 130 Þórhildur Laufey Sigurðardóttir

Þórhildur Laufey bókmenntafræðingur, grafískur hönnuður og brandari er gestur Óla Jóns í þessum páskaþætti.Þórhildur stofnaði fyrirtækið Kúper Blakk fyrir nokkrum árum, um fyrirtækið segir á kuperblakk.is“Hvað er þetta Kúper Blakk? Kúper Blakk er skapandi stofa sem eeeelskar að auka vörumerkjavirði fyrirtækja og færa brandið “heim í hús”. Galdurinn liggur í að skapa heilsteypta sögu, einfalda skilaboð og […]

Jón Trausti Ólafsson

Jón Trausti er framkvæmdastjóri Öskju, hann ólst upp við bíla á bílasölu sem pabbi hans á svo hann á ekki langt að sækja bílasöluáhugann þrátt fyrir að vera ekki svokallaður bíladellukall. Jón Trausti starfaði sem fararstjóri og var í Portúgal eftir menntaskóla. En mömmu hans fannst hann farinn að vera full mikið í burtu og skráði hann því í háskólann á Bifröst.

Þáttur 124 Baldur Rafn Gylfason

Í þessum þætti ræðir Óli Jóns var Baldur Rafn Gylfason hjá Bpro.isBaldur segir okkur frá því hvar hann lærði að vinna á Fellsströnd þar sem hann var vinnumaður í mörg sumur. Við fáum líka að vita hvernig það kom til að smiðssonurinn sem byrjaði að nema smíði í Iðnskólanum útskrifaðist svo af hárgreiðslubraut eða klippari […]

Þáttur 120 Berglind Ósk Ólafsdóttir

Berglind Ósk Ólafsdóttir verkefnastjóri umhverfismála hjá BYKO er gestur Óla Jóns í þessum þætti. Við ræðum meðal annars um hvernig BYKO vinnur að umhverfismálum, hvaða skref hafa verið stigin í átt að sjálfbærni og hver ábyrgð BYKO er í virðiskeðjunni varðandi vistvænt vöruframboð. Við förum einnig yfir Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna en BYKO er í miðri […]

Þáttur 112 Steinar Atli Skarphéðinsson

Steinar Atli er verkefna- og vörustjóri á ferðalausnasviði Origo.Í þessu viðtali segir Steinar okkur frá þeirri vinnu sem Origo hefur verið í undanfarin misseri í þróunn lausna fyrir ferðaþjónustuna.Þar má til dæmis nefna Booking Factory sem er “fullkomið hótelbókunarkerfi til að halda utan bókanir og verð í rauntíma á öllum sölurásum þ.m.t. á sölusíðum Booking, […]

Þáttur 110 Hjalti Már Einarsson

Hjalti Már Einarsson er forstöðumaður markaðssviðs Nordic Visitor. Hjalti er Vesturbæingur og KR-ingur en fæddist í Danmörku. Hjalti ætlaði alltaf að starfa við fjölmiðla þegar hann “yrði stór”, og eftir Versló starfaði hann sem útvarpsmaður í nokkur ár áður en hann flutti til Danmerkur þar sem hann nældi sér í þrjár háskólagráður: margmiðlunarhönnun, framleiðslu og […]