Ragnhildur Ágústsdóttir þáttur 78

Í þessum þætti spjallar Óli Jóns við Ragnhildi Ágústsdóttur sem er með þann skemmtilega titil
Sölustjóri samstarfsaðila og SMB fyrirtækja hjá Microsoft á Íslandi.


 

Ragnhildur Ágústsdóttir
Ragnhildur Ágústsdóttir

Ragnhildur hefur starfað hjá Microsoft í að verða 4 ár og hefur líkað mjög vel. Hún vinnur mest með samstarfsaðilum Microsoft á Íslandi, sem eru ríflega 100 talsins ef allt er talið með. Starfið gengur út á að ráðleggja samstarfsaðilunum í sölu á Microsoft lausnum, hvaða virði felst í lausnunum fyrir viðskiptavini og hún reynir eftir fremsta megni að aðstoða samstarfsaðilana í því að koma þessu virði á framfæri til viðskiptavina með skýrum og kraftmiklum hætti. 
Ragnhildur er stofnandi að Icelandic Lava Show ásamt manninum sínum. Hann er framkvæmdastjóri og sér um allan daglegan rekstur og hún er stjórnarformaður og er einnig að “vasast í ýmsum málum þessu tengdu á kvöldin og um helgar þegar tími gefst”.
Ragnhildur segir okkur frá tilkomu þess að hún stofnaði á sínum tíma (2013) BLÁAN APRÍL – styrktarfélag barna með einhverfu og var formaður þess í 6 ár. Það gerði hún að stórum hluta vegna þess að hún tók eftir því – verandi móðir tveggja drengja á einhverfurófinu – að það skorti verulega á almennan skilning á einhverfu og það voru ofsalega miklar ranghugmyndir á reiki þegar fjölskyldan flutti heim frá Danmörku þar sem strákarnir hennar voru greindir.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *