Andri Jónsson stofnaði Barnaloppuna ásamt Guðríði Gunnlaugsdóttur. Barnaloppan sem er að erlendri fyrirmynd er staður þar þú getur keypt og selt notaðar barnavörur.
Á barnaloppan.is segir;
“Í Barnaloppunni getur þú bæði keypt og selt notaða barnavöru, allt frá fötum og leikföngum til barnavagna og bílstóla. Sem seljandi leigir þú bás (erum með 205 bása til leigu) í eina viku að lágmarki og verðleggur sjálf/ur vörurnar þínar. Verðmiða með strikamerki munum við svo útvega í verslun okkar, og þegar vörurnar eru komnar í básinn sjáum við um restina. Við þjónustum viðskiptavini verslunarinnar og sjáum um söluna fyrir þig. Þú hefur möguleika á að fylgjast með sölunni þinni rafrænt, og við greiðum þér svo söluhagnaðinn með millifærslu samdægurs. Einfalt og þægilegt fyrir þig – og umhverfið allt!“

Í þessu viðtali segir Andri okkur frá hvernig þetta kom til allt saman hjá þeim, ásamt því að hvernig er að reka svona verslun og hvernig þau markaðssetja sig. Andri fer líka lítillega inn á framtíðarsýn þeirra.