Þáttur 142 María Ögn Guðmundsdóttir

Viðmælandi Óla Jóns í þessum þætti er afrekskonan María Ögn Guðmundsdóttir.
Að breyta áhugamálinu sínu í atvinnu er inntakið í þessum þætti þar sem við höldum áfram að huga að litlum fyrirtækjum og einstaklingum.

María Ögn Guðmundsdóttir
María Ögn Guðmundsdóttir

Allt áhugafólk um keppnishjólreiðar þekkir Maríu en hún hefur unnið marga Íslandsmeistaratitla hjólreiðum og varð fyrst kvenna til að keppa fyrir Íslands hönd í hjólreiðum á erlendri grund. María hefur þjálfað mikin fjölda af reiðhjólafólki, farið með hópa erlendis í hjólaferðir ásamt því að stjórna sjálf keppnum líkt og WOW cyclothon og Gullhringnum. 

Það er virkilega skemmtilegt að heyra sögu Maríu, sem segist vera heppin að vera með hugarfarið að vera galopin fyrir lífinu.

María starfar í dag sem sölustjóri hjá Unbroken

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *