Sigurður Ragnarsson lektor og forseti viðskiptafræðideildar háskólans á Bifröst kom í spjall í vor.
Við ræðum um stjórnun og forystu, markaðsmál, menntun og margt fleira.

Sigurður segir okkur meðal annars frá náminu á Bifröst, um viðskiptafræðina og fjarnáminu sem er í boði þar.
Flestir nemendur á Bifröst taka námið þar með vinnu enda er námskráin hönnuð með það í huga. Sigurður kemur einnig inná mikilvægi menntunar fyrir íslenskt atvinnulíf. Í haust er Bifröst að byrja að bjóða upp á BS nám í viðskiptagreind og fer Sigðurður einnig yfir það, mjög spennandi nám.
Sigurður vinnur nú að doktors verkefni sínu en í því verkefni rannsakar hann Þjónandi forysta eða Servent leadership.
Fyrirtæki eins og Southwest Airlines og Starbucks hafa meðal annars nýtt sér Þjónandi forystu Sigurður hefur heimsótt fyrirtæki í Bandaríkjunum í þeirri vinnu og stefnir hann á að klára næsta vetur.