Í þessu þætti ræði ég við Geirlaugu Jóhannsdóttur ráðgjafa og eiganda hjá Hagvangi.

Um Geirlaugu segir í umfjöllun Viðskiptablaðsins vegna eigendaskipta hjá Hagvangi;
“Geirlaug hefur lokið MBA námi frá Háskólanum í Reykjavík með áherslu á mannauðsstjórnun og BS gráðu í rekstrarfræðum frá Háskólanum á Bifröst. Hún starfaði áður við Háskólann á Bifröst sem aðjúnkt á viðskiptasviði Háskólans á Bifröst og kenndi þar m.a. mannauðsstjórnun. Hún var um árabil forstöðumaður símenntunar Háskólans á Bifröst og síðar verkefnastjóri tilraunaverkefnis um hækkað menntunarstig í Norðvesturkjördæmi. Áður starfaði Geirlaug sem fræðslustjóri hjá álverinu í Straumsvík. Geirlaug hefur reynslu af sveitarstjórnarstörfum og setið í ýmsum stjórnum, ráðum og nefndum. Geirlaug gekk til liðs við Hagvang árið 2015 og hefur unnið mikið fyrir sveitarfélög og setið í valnefndum vegna ráðninga stjórnenda og sérfræðinga hjá opinberum stofnunum og fjölmörgum fyrirtækjum.
Á hagvangur.is segir um fyrirtækið;
“Hagvangur er ráðninga- og ráðgjafafyrirtæki sem býður þjónustu við flest það er snýr að mannauðsmálum. Hjá Hagvangi starfa 9 sérfræðingar, annars vegar við ráðningar og hins vegar við stjórnenda- og mannauðsráðgjöf. Hagvangur hefur alla tíð einbeitt sér að faglegum ráðningum og starfsmannaleit og árið 2013 var endurvakið ráðgjafasvið fyrirtækisins. Hagvangur þjónustar árlega hundruði viðskiptavina við ráðningar, ráðgjöf, persónuleika- og hæfnipróf og margt fleira.
Starfsfólk Hagvangs hefur unnið mikið brautryðjendastarf í ráðningum og ráðgjöf á Íslandi. Áralöng þekking og reynsla af atvinnulífi á Íslandi, breytt tengslanet og gott orðspor eru meðal þeirra þátta sem við erum gríðarlega stolt af. Við höfum það að leiðarljósi að leggja stöðuga áherslu á nýjungar í þjónustu og áreiðanleika í öllum þeim störfum sem við tökum okkur fyrir hendur.
Í upphafi beindust sjónir Hagvangs mest að ráðningum. Fyrst í stjórnunar- og sérfræðistörf en fljótlega fór Hagvangur að bjóða viðskiptavinum sínum alhliða þjónustu við ráðningar á öllum sviðum atvinnulífisins.”