28. Þáttur Þorsteinn Mar Gunnlaugsson


Þorsteinn hefur lengi starfað að vefmálum, sá um vefinn hjá Ölgerðini, einnig hefur hann starfað hjá Móberg að sjá um vefi einsog Bland og fleiri.
Í dag er hann vefstjóri Iceland travel.

Þorsteinn fer yfir að á þessum tíma sem vefstjóri þá eru sömu vandamál sem þarf að leysa núna og fyrir tíu árum.
Það er að segja leitarvélabestun, fyrirtæki vilja enn sem fyrr finnast á leitarvélum. Þorsteinn fer yfir það hvað leitarvélabestun er, hvernig hún virkar og hvað hefur breyst. Bæði tæknilega á vefnum og eins efnið sem sett er á vefinn sé gott.

Þorsteinn fer líka inn á það hversu mikilvægt er að hlúa að vefsíðum, setja inn gott efni og setja það inn á réttum tíma. Vefsíða er tilbúinn hún er sífellt í þróunn og þarf alltaf að hlúa að henni.

Varðandi spurningu mína um leitarorð/keywords taldi Þorsteinn mikilvægt að á vefsíðum væri leitast við að ekki eingöngu svara fyrstu spurningu sem slegið er inn í leitarvél, heldur líka næstu þarf á eftir. Hann vitnaði þar í fyrirlestur Nick Wilsdon hjá Vodafone Uk á RIMC ráðstefnu nú í vetur, þar sem hann talaði um að þarf væri farið að leggja en frekar á herslu á að svara fleiri spurningum í kjölfar fyrstu, og þá meðal annars vegna mikillar aukningar í Voice search.

Í þættinum vitnar þáttastjórnandi í youtube video frá Moz, en það má sjá hér.

Ég spurði Þorstein að því hvaða lesefni hann mælti með fyrir þá sem vilja elfla sig í þessum vefmálum og markaðssetningu á netinu.

Fyrst má nefna Bókina um vefinn sem Sigurjón Ólafsson hjá Funksjon ræddi um í þætti 15 hér í Viskavarpinu.
Einnig mælti hann með bókinni
Markaðssetning á netinu eftir Kristján Má Hauksson og Guðmund Arnar Guðmundsson

Að auki mætli Þorsteinn með
Growth Hacker Marketing eftir Ryan Holiday
SEO for growth eftir John Jantsch & Phil Singleton

 

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *