Í þessum þætti fáum við að heyra í Þórönnu Jónsdóttur en hún er markaðs- og kynningarstjóri hjá Samtökum verslunar og þjónustu. Þóranna segir okkur frá SVÞ, og leiðinni frá leiklist og söng í störf við markaðsmál, hvað efnismarkaðssetning er og margt fleira.

Í frétta tilkynningu á svth.is segir um Þórönnu þegar hún tók við því starfi;
“Þóranna K. Jónsdóttir hefur tekið við starfi markaðs- og kynningarstjóra SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu. Starfið er nýtt og merki um þá áherslu sem samtökin leggja á öfluga upplýsingamiðlun og notkun stafrænna miðla. Þóranna hefur verið sjálfstætt starfandi markaðsráðgjafi um árabil með áherslu á stefnumótun markaðsmála og stafræna markaðssetningu. Þóranna hefur starfað með fjölbreyttum hópi fyrirtækja svo sem AwareGO, Gagarín, Opna háskólanum, Sóley Organics, SimplyBook.me, RóRó o.fl.Hún hefur verið virk í sprota- og nýsköpunarumhverfinu og hefur m.a. starfað með Nýsköpunarmiðstöð, verið mentor hjá Icelandic Startups o.fl. Áður starfaði Þóranna sem verkefnastjóri hjá Kadeco, rak eigið fyrirtæki í upplýsingatækniþjónustu, í markaðsmálum hjá Sparisjóðnum, hjá auglýsingastofunni Góðu fólki og hjá auglýsingastofunni Publicis í London.Þóranna er með MBA gráðu með áherslu á stefnumótun markaðsmála frá University of Westminster í London og er vottaður sérfræðingur í stafrænni markaðssetningu frá DigitalMarketer.”