Birgi Jónsson þarf líklega ekki að kynna fyrir mörgum í íslensku viðskiptalífi eða fyrir þeim sem fylgjast með íslensku rokki.
Birgir sem er úr Kópavogi og kallar sig Kópavogsvilling, hefur verið að tromma síðan hann man eftir sér. Birgir lærði offset prentun á Íslandi en skellti sér svo erlendis í nám þegar hann var 22 ára. Hann kláraði meðal annars MBA nám í Englandi. Eftir að hann heim kom starfaði Birgir hjá Össur og í því starfi flutti hann til Hong Kong. Eftir það var Birgi boðið starf hjá Iceland Express þar sem hann var meðal annars forstjóri. Í kjölfarið flytur Birgir sig aftur erlendis og verður forstjóri prenstmiðju í Rúmeníu og Búlgaríu.
Birgir sem er í dag forstjóri Íslandspósts ræðir í þessu viðtali um ferilinn bæði í viðskiptum og í tónlistinni. Við ræðum að sjálfsögðu verkefnin hjá Póstinum ásamt tímanum með hljómsveitinni Dimmu.
Hann segir okkur frá því hvað trommarar og góðir stjórnendur eiga sameiginlegt.
