Í þessi viðtali númer 101 af Hlaðvarpinu með Óla Jóns fáum við að kynnast Grétu Maríu Grétarsdóttur.

Gréta sem ólst upp úti á landi segir það forréttindi að alast upp við það frelsi sem því fylgdi.
Íþróttir hafa alltaf átt stóran þátt í lífi Grétu en hún á að baki glæstan feril í körfuboltanum bæði sem leikmaður og þjálfari. Hún þjálfaði meistaraflokk KR og segir okkur frá því að það hafi í raun verið hennar fyrsta alvöru stjórnunarstaða. Bæði sem þjálfari og stjórnandi hefur Gréta lagt áherslu á að hjálpa fólki að hafa trú á sjálfu sér.
Gréta sem útskrifaðist sem stúdent frá Menntaskólanum í Hamrahlíð segist ekki hafa verið dæmigerður MHingur. Gréta lærði svo vélaverkfræði í háskóla. Meistarverkefnið hennar fjallaði um vöruþróun.
Gréta hefur meðal annars starfað hjá Arionbanka í 6 ár, sem fjármálastjóri hjá Festi og svo sem framkvæmdastjóri Krónunnar.
Eins og áður segir lítur Gréta á sitt aðalhlutverk sem stjórnanda að hjálpa fólki að vaxa bæði í starfi og sem einstaklingar.
Gréta leggur einnig mikla áherslu á að fyrirtæki geri allt sem þau geta til þess að láta gott af sér leiða og nefnir sem dæmi í umhverfsimálum og jafnréttisbaráttu. Að allir ekki síst stjórnendur fyrirtækja nýti sín tækifæri eins og þeir geta til góðs.
Hún telur einnig mikilvægt að þora að viðurkenna mistök. Það geta allir gert mistök og það er mikilvægt að læra að viðurkenna þau og læra af þeim.
Listin að mistakast, opinn hádegisfundur sem Gréta hélt í HR, kemur einmitt inn á það.
Við ræðum einnig um konur í stjórnum fyrirtækja og veltum upp spurningunni: Hvers vegna eru þær ekki fleiri?