Fyrir einhverjum vikum síðan ákvað ég að blása aftur lífi í podcastið mitt þesas Hlaðvarpið með Óla Jóns og var alveg ákveðin hvern ég vildi fá sem fyrsta viðmælanda.
Viðkomandi var auðvitað klár í slaginn og ég brunaði á Selfoss með upptökubúnað (sem ég er greinilega aðeins ryðgaður í að nota) og tók viðtal við Dóru í Slowstudio.
Ég reyndar kalla hana Dóru Gullu frænku þar sem hún er dóttir systir minnar ein af fjölmörgum afkomendum systra minna sem ég er virkilega stoltur af 🙂
Það er því auðvitað engin tilviljun að þetta tiltekna viðtal skuli koma í loftið í dag 21. mai á fæðingardegi pabba sem ekki var síður ánægður með barnabörnin og barnabarna börnin en okkur systkinin.
Á slowstudio.is stendur:
Halldora Thorvaldsdottir is a freelance brand and content strategist with a deep passion for sustainability and slow living. After completing her BA thesis, Anti Consumerism, Pro Environmentalism, she realized that her professional calling lay in building a career around these ideals. Her mission is to empower sustainable and ethically-minded brands to reach their highest potential—growing in harmony with nature while honouring their unique energetic workflows.